um okkur
www.minivelar.is

Fjölskyldufyrirtæki á Norðurlandi

Minivélar er fjölskyldufyrirtæki staðsett á Norðurlandi, stofnað af einstaklingi með djúpar rætur í vélavinnu og framkvæmdaiðnaði. Eigandinn ólst upp í sveitinni þar sem fyrstu skrefin í vinnuvélum voru stigin aðeins 12 ára gamall. Þaðan lá leiðin til verktakastarfa í Skagafirði, þar sem ástríðan fyrir vélum og öflugum búnaði varð til.

Frá þessum bakgrunni spratt hugmyndin að Minivelar – fyrirtæki sem stefnir að því að gera aðgengi að kraftmiklum vinnuvélum auðveldara, hagkvæmara og persónulegra. Við viljum brúa bilið milli einstaklinga og verktaka, þar sem allir geta fundið hágæða vélar og græjur á góðu verði – hvort sem það er fyrir garðinn, bústaðinn, eða atvinnuframkvæmdir.

Algengar spurningar

Hver er afhendingartími?
Við afhendum vinnuvélar og gröfur um allt land. Afhending tekur yfirleitt 1-4 virka daga eftir staðsetningu og framboði. Við tryggjum örugga og fljótlega afhendingu beint til þín! 🚚
Bjóðið þið upp á aukahluti?

Já, við hjá seashell-pony-715337.hostingersite.com bjóðum upp á fjölbreytt úrval af auka- og varahlutum, þar á meðal mismunandi stærðir af skeiðum, borum og öðrum verkfærum til að auka fjölhæfni vélarinnar.

Sjáið þið um viðgerðir?

Já, við sjáum um að græja viðgerðir á verkstæðinu okkar og bjóðum upp á íhluti.

Þarf ég að tryggja vélina mína?

Vinnuvélar eru ekki lögbundið tryggðar, þannig að eigandi velur sjálfur hvort hann tryggir vélina. Margir sleppa því með hobbývélar, en þó er gott að hafa ábyrgðartryggingu ef skemmdir verða á lögnum eða ökutækjum. Þetta á sérstaklega við ef vélin er notuð við vinnu.

Hvaða vinnuvél er rétt fyrir mig?

Endilega hafðu samband við sérfræðingana okkar í síma 7707384 eða á minivelar@seashell-pony-715337.hostingersite.com og við aðstoðum þig að finna réttu vélina.

Hafa samband

Ekki hika við að hafa samband við okkur fyrir frekari upplýsingar, verðtilboð eða ráðgjöf. Við svörum öllum fyrirspurnum hratt og hjálpum þér að finna réttu vinnuvélina fyrir þitt verkefni.